Skráning er hafin á landsþing á Ísafirði
Skráning er nú hafin á 40. landsþing Kvenfélagasambands Íslands sem fram fer á Ísafirði dagana 11. - 13. október næstkomandi.
Landsþingssíðan er www.kvenfelag.is/landsthing , auk upplýsinga og skráningarforms má þar finna fyrstu drög að dagskrá þingsins. Sjáumst á Ísafirði í haust.
Smelltu á myndina til að fara á upplýsingasíðu landsþings.
...
Lesa nánarFyrsta tölublað Húsfreyjunnar 2024 er komið út
Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar þetta árið er komið út. Húsfreyjan fagnar 75 árum í ár, en fyrsta tölublaðið kom út 1949. Allan þennan tíma hefur Kvenfélagasamband Íslands gefið Húsfreyjuna út fjórum sinnum á ári, með aðeins örfáum undantekningum. Húsfreyjan er mikilvægur hluti af menningu þjóðarinnar og hefur nú í sjötíu og fimm ár varðveitt og endurspeglað á einstakan hátt íslenska kvennasögu.
Forsíðuviðtalið að þessu sinni er við Snædísi Yrju Kristjánsdóttur. Snædís var aðeins sex ára gömul þegar hún uppgötvaði sjálf að hún hefði fæðst í röngum líkama. En hún var samt ekki tilbúin að viðurkenna það fyrir sjálfri sér fyrr en hún varð sextán ára. Í dag blómstrar hún í réttum líkama. Hún hefur alla tíð verið afar opinská varðandi allt það ferli sem hún hefur gengið í gegnum um.
Að venju er í fyrsta tölublaðinu í tilefni Dags kvenfélagskonunnar 1. Febrúar, lögð sérstök áhersla á að kynna starf kvenfélaganna víða um land. Sagt er frá 100 ára afmæli Kvenfélags Grindavíkur, en þær héldu up...
Lesa nánarSkilafrestur framlengdur í Smásögusamkeppni Húsfreyjunnar til 20. mars nk.
Skilafrestur í Smásögusamkeppni Húsfreyjunnar hefur verið framlengdur til 20. mars 2024.
Lumar þú á góðri sögu?Smásagnasamkeppni Húsfreyjunnar er kynnt á nýjan leik.
Smásagnasamkeppnin er öllum opin og efnisval frjálst.
...
Lesa nánarÁ döfinni
Húsfreyjan
Áskrift að Húsfreyjunni kostar kr. 6.900 árið 2024 fyrir fjögur tölublöð. Blaðið í lausasölu kostar 2 250 kr.
Vitundarvakning um fatasóun
Matarsóun
Pilspoki KÍ
Húfuverkefni KÍ.
Hekluð vagga
Viltu gerast áskrifandi eða gefa áskrift að Húsfreyjunni?
Áskrift að Húsfreyjunni kostar kr. 6900 árið 2024 fyrir fjögur tölublöð. Nú er líka hægt að lesa rafrænar útgáfur á áskriftarvefnum. Þú velur hvort þú vilt Húsfreyjuna á prenti, rafrænt eða bæði.
Blaðið í lausasölu kostar 2250 kr.
Nýjustu fréttir
Skráning er hafin á landsþing á Ísafirði
20. mars 2024
Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar 2024 er komið út
07. mars 2024
Dagur kvenfélagskonunnar 1. febrúar
31. janúar 2024