×

Warning

The form #15 does not exist or it is not published.

Ársáskrift  kostar 5900 krónur m/vsk greidd með greiðslukorti eða með kröfu í banka. Verðskrá getur breyst og er þá tilkynnt í 4. tbl. Greiðslur með greiðslukorti fara í gegnum viðurkennda greiðslugátt Borgunar.  Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með símtali, eða á annan sannanlegan hátt á skrifstofu Kvenfélagasambands Íslands. Uppsögn gildir frá og með næstu áramótum. Áskrift og aðgangur að áskriftarvef er opin á meðan áskrift er greidd og gildir út það ár sem er greitt.

Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa þar til henni er sagt upp, breytingar á heimilisfangi skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Áskrifanda er óheimilt að nýta efni úr blaðinu nema til einkanota. Öll afritun, fjölritun og endurbirting er óheimil í hvaða formi sem er. Áskrifandi heitir því að deila ekki aðgang að áskriftarvef með þriðja aðila.

Rísi ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi, en annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Tímaritið er sent í pósti með Póstinum á heimilisfang áskrifanda.  Greitt er fyrir eitt ár í senn og eru fyrri tölublöð ársins send til nýs áskrifanda svo fljótt og kostur er. Sendingarkostnaður er innifalin í verði áskriftar. Aðgangur að rafræna áskriftarvefnum er sendur með tölvupósti til áskrifenda.

Húsfreyjan - tímarit áskilur sér rétt til þess að breyta áskriftarskilmálum þessum. Breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á á netslóðinni www.husfreyjan.is. Kynnt skal í hverju breytingarnar felast og réttur áskrifanda til þess að segja samningi upp án frekari fyrirvara vegna breytinganna.

Persónuverndarupplýsingar / Trúnaður

Gögn þau sem áskrifandi veitir Húsfreyjunni – timarit í té eru eingöngu nýtt til að hafa samband beint við áskrifanda vegna áskriftarinnar. Engar persónuupplýsingar eru afhentar þriðja aðila.

Ert þú hluti af lausninni við textílvandanum?

28. ágúst – 29. ágúst 2020

Spjaraþon verður haldið dagana 28.-29. ágúst 2020 og hefur verið fært frá Umhverfisstofnun yfir á vefinn vegna COVID-19.

Nánari upplýsingar um framkvæmd verða sendar á þátttakendur. 

Hvað er Spjaraþon?

Spjaraþon er tveggja daga hugmyndasmiðja eða hakkaþon, þar sem þátttakendur læra um vanda textíliðnaðarins og þróa og skapa í framhaldinu lausnir sem sporna gegn textílsóun. Þátttakendur velja úr fimm spennandi áskorunum sem unnar eru í samstarfi við ráðgjafahópa og samstarfsaðila Spjaraþonsins. Kvenfélagasamband Íslands er samstarfsaðili Spjaraþons í gegnum verkefnið Vitundarvakning um fatasóun.

Fyrirlesarar fjalla um stöðu vandamálsins og hönnunarferlið þegar kemur að því að fá góða hugmynd sem þróa á yfir í árangursríkar lausnir sem eru bæði raunhæfar og gagnlegar. Teymin þróa hugmyndir, skila samantekt af þeim og kynna fyrir dómnefnd. Veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndina.

Fyrir hverja?

Alla! Sérfræðinga, nema, hönnuði, fjárfesta, vísindamenn, kennara, félagsfræðinga, ömmur og fólk af öllum aldri og kynjum.

Hvar og hvenær?

Spjaraþon verður haldið dagana 28.-29. ágúst 2020 hjá Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24.

Helstu áskoranir

  1. Hvernig fáum við almenning til að draga úr neyslu?
  2. Hvernig stuðlum við að sjálfbærni í framleiðslu textíls?
  3. Hvernig fáum við almenning til að lengja líftíma eigin textíls?
  4. Hvernig tryggjum við betri og skilvirkari endurvinnslu svo verðmæti tapist ekki?
  5. Hvernig aukum við þátttöku almennings í endurvinnslu á textíl?

Skráning og nánari upplýsingar hér.  

Kvenfélagasamband Íslands var stofnað 1. febrúar 1930 og fagnar því 90 árum á þessu ári.

Kvenfélagasamband Íslands (KÍ), er samstarfsvettvangur og málsvari kvenfélaganna í landinu. KÍ er fjölmennasta kvennahreyfingin á Íslandi sem starfar á landsvísu, með 17 héraðssambönd og 154 kvenfélög sem telja tæplega 5000 félaga. 1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar.

gjöftil kvenna á Íslandi

Í tilefni 90 ára afmælisins munu kvenfélög um land allt standa fyrir söfnun.

Kvenfélagskonur safna fyrir tækjum og hugbúnaði honum tengdum, sem kemur til með að gagnast öllum konum um landið allt. Um er að ræða mónitora og ómtæki, nýja eða uppfærða eftir því sem við á og rafrænar tengingar á milli landsbyggðar og Kvennadeildar Landspítalans.

Þau munu nýtast öllum konum á Íslandi, hvort sem er við meðgöngu og fæðingu, eða skoðana vegna kvensjúkdóma. Tækin sem safnað verður fyrir geta aukið öryggi í greiningum og í mörgum tilfellum komið í veg fyrir að senda þurfi konur á milli landshluta vegna ýmissa óvissuþátta. Sjá nánar hér að neðan.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur tileinkað árið 2020 hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum og það er okkur því sérstakt gleðiefni að safna tækjum sem nýtast þessum starfsstéttum.

Kvenfélagskonur hafa stutt við l Landsspítalann frá stofnun hans og staðið fyrir söfnunum á peningum og tækjum sem hafa komið sér vel fyrir fjölmarga þegna landsins.

Á meðan söfnuninni stendur munu kvenfélagskonur víða um land  selja falleg armbönd sem í eru grafin gildi sambandsins, Kærleikur – Samvinna – Virðing og Ég er kvenfélagskona.

Í samvinnu við Omnom verður líka selt súkkulaði frá Omnom þrjár plötur í pakka.

Þú getur nú pantað bæði armbönd og súkkulaði á Heimkaup.is 

Ef vinnustaðurinn þinn vill fá heimsókn frá kvenfélagskonum með armbönd og súkkulaði, láttu okkur vita og við finnum tíma með þér. Sendu póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hægt er að leggja beint inn á söfnunarreikninginn:

Capture

Markmiðið er að safna 36 milljónum króna.

Söfnunin stendur til 1. febrúar 2021.

 Allar nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu KÍ s: 5527430 This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og afmælisnefnd.

Kvenfélög hafa samband við skrifstofu til að fá aðgang að pöntunarformi. 

Afmælisnefnd skipa: 

 Eva Michelsen KSK, Elinborg Sigurðardottir SSK, Linda Sverrisdóttir SBK, Harpa B. Hjálmtýsdóttir KSK, Ágústa Magnúsdóttir KSGK ásamt fulltrúum stjórnar KÍ, Þórný Jóhannsdóttir varaforseti KÍ, Sólveig Ólafsdóttir varastjórn KÍ og Guðrún Þórðardóttir forseti KÍ.

Auglýsing vef með Heimkaup.is

Nánar um tækin og hugbúnaðinn sem verið er að safna fyrir:

Frá Önnu Sigríði Vernharðsdóttur, yfirljósmóður fæðingarvaktar 23-B 

Um Milou: Milou er hugbúnaður og tengibox sem gerir kleift að skoða og vinna með fósturhjartsláttarrit á rafrænan hátt. Þannig er hægt að fylgjast með fósturhjartslætti utan fæðingarstofunnar, t.d. á vaktherbergi fæðingardeildar. Tæknin býður einnig upp á þann möguleika að skoða fósturhjartsláttarrit í tölvu utan stofnunar. Þannig getur t.d. læknir sem er á bakvakt heima, skoðað og metið rit. Einnig er mögulegt fyrir minni fæðingarstaði að fá álit á fósturhjartsláttarriti frá stærri fæðingarstað, t.d. frá Landspítala eða Akureyri. Milou býður upp á kerfisbundið mat á fósturhjartsláttarritum sem byggir á nýjustu þekkingu á því sviði. Þetta matstæki hefur verið þýtt af ljósmæðrum og læknum á Landspítala og notað þar síðustu 2 ár. Kerfisbundið mat er talið áreiðanlegra og ætti því að veita aukið öryggi í fæðingu. Með tilkomu Milou er ekki lengur þörf á útprentun fósturhjartsláttarrita þar sem þau eru vistuð á rafrænan hátt og hægt að nálgast þau rafrænt hvenær sem er. Það er margt sem fæst með því að að innleiða Milou á fæðingarstaði landsins. Aukið öryggi fæst með kerfisbundnu mati rita og að fleiri geti séð rit en eingöngu sá fagaðili sem er inni á fæðingarstofunni. Aukið öryggi gagna og aukið aðgengi fæst með rafrænni vistun ritanna.

Frá Huldu Hjartardóttur Yfirlæknir fæðingarþjónustu Kvenna- og barnasviði LSH :

Um Astraia hugbúnaðinn: Astraia hugbúnaðurinn hefur verið í notkun á fósturgreiningardeild Landspítala í um 15 ár. Sjúkrahúsið á Akureyri er einnig með þennan hugbúnað og við vinnum með sama gagnagrunninn sem er vistaður hér á Landspítala. Myndir og myndskeið eru flutt úr ómtækjunum í þennan gagnagrunn og vistuð þar undir kennitölu konunnar. Þannig höfum við á einum stað allar upplýsingar um ómskoðanir allra kvenna sem koma í skoðanir á meðgöngu á Landspítala og Akureyri. Út frá þessum gögnum getum við síðan reiknað meðgöngulengd, fylgst með vexti og gefin út svör um þessa þætti sem birtast í rafrænni sjúkraskrá konunnar hvar sem hún er stödd á landinu. Einnig hefur konan aðgang að svörunum í gegnum heilsuveru.is í sínum farsíma eða tölvu ef hún óskar þess. Á landsbyggðinni er enginn gagnagrunnur til staðar og svörin eru útbúin með ýmsum hætti. Einnig er ekki staðlað hvaða viðmið eru notuð til að reikna út meðgöngulengd og vöxt. Aðgengi að þessum svörum er ekki nægilegt fyrir annað heilbrigðisstarfsfólk og kemur oft fyrir að engar eða takmarkaðar upplýsingar eru til staðar þegar konum er vísað til frekari skoðunar þar sem meiri sérhæfing er til staðar eða þegar vandamál koma upp síðar í meðgöngu. Gagnagrunnurinn nýtist einnig til að vista myndir og gefa út góð svör við ómskoðanir á kvenlíffærum utan þungunar.

Sameiginlegur gagnagrunnur fyrir landið væri mjög æskilegur til að við getum samræmt vinnubrögð okkar hvar sem er á landinu til að tryggja sem best gæði þjónustunnar. Einnig auðveldar það öll samskipti og getur komið í veg fyrir að það þurfi að senda konur um langan veg til frekari skoðana ef hægt er að skoða myndir/myndskeið á þeim stöðum á landinu þar sem mesta sérhæfingin er til staðar. Upplýsingar um allar fyrri skoðanir yrðu einnig tiltækar hvar sem konan kemur næst til skoðunar. Engin gögn eða upplýsingar tapast og hægt að bera saman bæði milli skoðana og jafnvel milli meðgangna sömu konunnar. Gagnagrunnurinn er mjög auðveldur í notkun og hægt að sníða að þörfum notendanna varðandi útlit svara, tungumál og val á vaxtarviðmiðum. Það er trú okkar sem störfum við fósturómskoðanir og ómskoðanir á kvenlíffærum að aðgengi alls staðar á landinu að þessum gagnagrunni væri veruleg viðbót við eftirlit með heilbrigði kvenna og tryggði betur gæði slíks eftirlits.

 

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands