


| Dagur kvenfélagskonunnar 1. febrúar - Nýtt kvenfélag stofnað í Reykjavík | Senda á facebook |
|
|
| Föstudagur, 27. janúar 2012 00:00 |
|
Opið hús í Hallveigarstöðum, nýtt kvenfélag stofnað í Reykjavík Dags kvenfélagskonunnar er getið á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum og Kvenfélagasamband Íslands vekur athygli á deginum í fjölmiðlum til að festa hann enn frekar í sessi.Kvenfélög og kvenfélagskonur eru hvattar til að muna eftir deginum og jafnvel gera sér dagamun hver og ein eða saman, en einnig að vera tilbúnar til að taka á móti hamingjuóskum og athygli þennan dag. Kvenfélagasamband Íslands verður með opið hús í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14, kl. 16.30 - 18.30 þann 1. febrúar
Hópur kvenna hefur um nokkurt skeið unnið að stofnun nýs kvenfélags í Reykjavík sem stofnað verður á Hallveigarstöðum þennan dag. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir
|
Formannaráð KÍ hefur samþykkt ályktun þess efnis að spara notkun plastpoka t.d. við innkaup og nota þess í stað taupoka sem tilvalið er að sauma t.d. úr gömlum pilsum.


Áskrift að Húsfreyjunni kostar 4.100 krónur á ári fyrir fjögur tölublöð sé greitt með greiðslukorti en 4.300 krónur ef óskað er eftir að greiða í gegnum innheimtukerfi banka/ greiðsluseðill.