Stærð: 0-3 mánaða.
Efni: Kambgarn frá Ístex
Prjónar: 40 cm. hringprjónn og sokkaprjónar nr: 2,5 – 3,5
Prjónfesta: Slétt prjón: 24 L = 10 cm á prjóna nr. 2,5 - 3,5
Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf.
Aðferð:
Húfan er prjónuð í hring, fyrst með hringprjóni og síðan með sokkaprjónum þegar lykkjum fækkar í úrtöku.
Fitjið upp 102 lykkjur á 40 cm hringprjón nr. 2,5 – 3,5
Tengið í hring og prjónið 5 umf. perluprjón eða garðaprjón.
Umf. 1. – 3. – 5. – 7. – 9. – 11. o.sv.frv. eru munsturumferðir og prjónaðar skv. eftirfarandi:
*Prjónið 15 lykkjur sléttar, takið 1 lykkju óprjónaða af, prjónið 2 lykkjur sléttar saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu.
Prjónið 15 lykkjur sléttar, sláið bandi upp á prjóninn, prjónið 1 lykkju slétta, sláið bandi upp á prjóninn.*
Endurtakið frá * til * út umferðina.
Síðasta lykkjan í umferðinni er þá "bandið sem slegið var upp á prjóninn"
Umf. 2. – 4. – 6. – 8. – 10. – 12. o.sv.frv. eru prjónaðar slétt (einnig bandið sem slegið var uppá í lok munsturumferðarinnar).
Það band (lykkja) verður síðan alltaf talin lykkja nr. 1 í sléttu umferðinni á eftir til þess að munstrið passi, þó svo að hún sé í rauninni síðasta lykkjan í fyrri umferð.
Þannig að þegar taldar eru 15 lykkjur í byrjun umf. 1. – 3. – 5. o.sv.frv. þá er byrjað að telja í umferðinni á undan þegar síðasta lykkjan er prjónuð.
Prjónið alls 12 útaukningar og 12 úrtökur, samtals 24 umferðir.
Úrtaka í kollinum.
Eftir 24 umferðir er hætt að auka út (ekki er lengur slegið uppá prjóninn) en haldið áfram að taka úr eins og áður (takið 1 lykkju óprjónaða af, prjónið 2 lykkjur sléttar saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu) en nú er það gert í hverri umferð þar til 12 lykkjur eru eftir.
Prjónið 2 lykkjur saman út umferðina, þá eru 6 lykkjur eftir. Slítið bandið frá og skiljið eftir smá spotta, þræðið spottann gegnum lykkjurnar og gangið frá.
Böndin:
Teknar eru upp tvær til þrjár lykkjur sitt hvoru megin á húfunni. Ekki er prjónað fram og til baka heldur alltaf í sömu átt. Þegar næsta umferð byrjar liggur bandið af síðustu lykkjunni fyrir aftan og er notað í fyrstu lykkju og myndast þá hringlaga band.(gert með því að ýta prjóninum niður svo lykkjurnar færist á hinn enda hans).
Prjónuð eru ca. 20-25 cm löng bönd.
Ath. Þegar uppskrift byggir á aðferðunum að – taka úr og auka út - þarf að auka út jafn oft og tekið er úr yfir umferðina svo lykkjufjöldinn breytist ekki.
Uppskriftin er upprunalega frá Storkinum garnverslun en hefur verið einfölduð og breytt nokkuð.