Kvenfélagasamband Íslands

Þú ert hérna: Forsíða Húsfreyjan Nýjusta Húsfreyjan
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Ný tölublöð
Haustblað Húsfreyjunnar er komið út Senda á facebook Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Haustblað Húsfreyjunnar, tímarits Kvenfélagasambands Íslands er komin út.

Að þessu sinni eru aðalviðtölin við Torfhildi Rúnu Gunnarsdóttir sem lauk stúdentsprófi um sextugt og gekk af því tilefni Jakobsveginn, gönguleiðina löngu á Spáni og Mjöll Einarsdóttur kvenfélags og handavinnukonu á Selfossi. Eygló Guðjónsdóttir forstöðumaður Leiðbeiningarstöðvar heimilanna fjallar um nesti og hvað er nauðsynlegt að hafa í huga þegar við þvoum okkar þvott. Margrét S. Sigurbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn: Hollt og hagkvæmt, þar eru meðal annars uppskriftir af villigæs, beyglum, heimagerðum osti og heitri salsasúpu fyrir haustkvöldin. Hildur Sveinsdóttir textílkennari sér um handavinnuþáttinn sem inniheldur hlýtt teppi, herrapeysu, stelpu tösku, húfu og hringtrefil. Einnig er í blaðin glæsileg uppskrift af bútasaums diskamottum fyrir jól og aðventu. Síðan eru fréttir frá Kvenfélagasambandi Íslands og krossgáta Dollýar er á sínum stað. 

 Kvenfélagasamband Íslands hefur gefið Húsfreyjuna út í 62 ár, ritstjóri er Kristín Linda Jónsdóttir.

Húsfreyjan er seld í áskrift hjá Kvenfélagasambandi Íslands
og í lausasölu, sjá sölustaði: http://kvenfelag.is/husfreyjan/solustadir.html

 
Sumarblað Húsfreyjunnar er komið út Senda á facebook Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sumarblað Húsfreyjunnar, tímarits Kvenfélagasambands Íslands, er komið út.

Í blaðinu eru áhugaverð viðtöl, fræðsla, ráðgjöf um matargerð og heilsu, uppskriftir og handavinna, krossgáta og fréttir.

Að þessu sinni kynnast lesendur Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur þriggja barna móður sem býr í Eyjafjarðarsveit og er framkvæmdastjóri Hofs menningarhúss á Akureyri.
Einnig er í tímaritinu spjallað við Birgittu H. Halldórsdóttur rithöfund, reikimeistara, bónda og Töfrakonu í Húnavatnssýslu.
Handavinnuþátturinn er sumarlegur, þar eru bæði sumarbústaða- eða útilegusokkar, sumarbústaðateppi og sokkaskór fyrir smáa fætur.
Margrét S. Sigbjörnsdóttir sér um matreiðsluþáttinn Hollari matur með Margréti. Í honum er fjöldi hollra og girnilegra uppskrifta.
Kristín Sigfúsdóttir skrifar um jafnrétti á heimilunum og kynjaða hússtjórn.
Eygló Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Leiðbeiningastöðvar heimilanna býður lesendum upp á vandaða fræðslu um sítrónur og hvítlauk og uppskrift að grasöli og rabarbaragraut. Í tölublaðinu eru fréttir frá starfi Kvenfélagasambands Íslands og krossgáta Dollýar er á sínum stað.

Kvenfélagasambandið hefur gefið Húsfreyjuna út í 62 ár.
Ritstjóri er Kristín Linda Jónsdóttir.
 
Vorblað Húsfreyjunnar fæst á sölustöðum um land allt Senda á facebook Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

1. tbl. Húsfreyjunnar 2011  er komið út.

Forsíðuviðtal blaðsins er við Rúnu Magnúsdóttur ACC stjórnendamarkþjálfa og stofnanda Connected-Women.com og meðstofnanda BRANDit.
Rúna hvetur konur til að vekja athygli á konum og hvetja þær til dáða og okkur öll til að gefa skýr skilaboð og hafa gaman af öllu því sem við gerum.
Elsa Arnardóttir á Ísafirði, framkvæmdastjóri Fjölmenningarseturs, fjallar um setrið og segir lesendum af sjálfri sér og töfrum Ísafjarðar.
Anna Forslund ráðgjafi í alþjóðavatnsmálefnum, búsett í Svíþjóð, fjallar um vatn veraldar.
Eygló Guðjónsdóttir forstöðumaður Leiðbeiningastöðvar heimilanna fjallar um nauðsyn fitu í mat og mismunandi gerðir fitu.
Bylgja Valtýsdóttir upplýsingafulltrúi Hjartaverndar fræðir um hjartasjúkdóma kvenna.
María Gunnarsdóttir leikskólakennari í Garðabæ segir frá sínu lífi og starfi og kvenfélaginu sínu.
Margrét S. Sigbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn: Hollt og hagkvæmt, þar er kennt að gera sushi, spennandi fiskréttir, innbakaður lambavöðvi og hrossasteik með skötusel, gulrótarterta, baka og skyrterta allt afar girnilegt.
Þær Elínborg Proppé og Kristín Ólafsdóttir sjá um handavinnuna. Þar ber hæst glæsilega gula heklaða páskaskál og peysukápu á stúlku, auk þess eru þar flottar páskahænur og ungar, útsaumuð kort og smart hálsmen. 
Þá eru fréttir frá Kvenfélagasambandi Íslands og krossgáta Dollýar er á sínum stað.  
 

 
Jólablað Húsfreyjunnar 2010 Senda á facebook Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Aðventu- og jóla-Húsfreyjan er komin út. (4.tbl.2010)
Aðalviðtöl blaðsins eru við Sigrúnu Knútsdóttur sjúkraþjálfara á Grensás sem nýverið hlaut sérstaka viðurkenningu Evrópudeildar Heimssambands sjúkraþjálfara fyrir sitt framlag til sjúkraþjálfunar og endurhæfingar mænuskaðaðra og Guðlaugu Einarsdóttur formann Ljósmæðrafélags Íslands. Spjallað er við konur í Skagafirði um altaristöfluna í Miklabæjarkirkju sem er einstakt bútasaumslistaverk unnið í samvinnu skagfirskra kvenna. Jólasagan er eftir Aðalbjörgu Pálsdóttur í Vallarkoti í Þingeyjarsveit.
Margrét S. Sigbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn: „Bráðum koma jólin“, þar má m.a. finna hangikjöts-carpaccio, jólasalat, grafna gæsabringu, jólarauða rauðrófusúpu, girnilega eftirrétti, ávaxtaköku, rúgbauð og jólakrans. Linda Björk Óladóttir myndlistarmaður fjallar um gerð jólakorta og gefur lesendum uppskriftir af nokkrum hagkvæmum og fallegum kortum. Ásdís Birgisdóttir sér um handavinnuþátt Húsfreyjunnar, meðal efnis er glæsileg hátíðarpeysa fyrir dömur, sjal, vesti með dómínóprjóni, dúkkukjóll og sjóræningjahúfa. Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti gefur góð ráð um fæðuval í desember og Eygló Guðjónsdóttir fr.kv.stj. Leiðbeiningastöðvar heimilanna gefur upplýsingar um hvað þarf mikið af mat í veisluna og fræðir lesendur um súkkulaði.
 
Haustblað Húsfreyjunnar komið út Senda á facebook Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Haustblað Húsfreyjunnar tímarits Kvenfélagasambands Íslands árið 2010 er komið út.

Að vanda er tímaritið fjölbreytt og inniheldur uppskriftir og handavinnu, áhugaverð viðtöl, fræðslu, ráðgjöf krossgátu og fréttir.

Að þessu sinni eru aðalviðtölin við þær Aðalbjörgu Þorsteinsdóttur sem rekur fyrirtækið sitt Villimey á Tálknafirði og Mirjam Blekkenhorst sem rekur listatengt farfuglaheimili á Ytra-Lóni á Langanesi. Margrét S. Sigurbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn, Haustmatargerð í eldhúsi Margrétar. Þar má finna spennandi hugmyndir að framreiðslu á slátri, grænmetisböku, lerkisveppasúpu, lambaskanka, kjötbollur og sultur án sykurs svo eitthvað sé nefnt. Ásdís Birgisdóttir framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands sér um handavinnuþátt Húsfreyjunnar en í honum má finna glæsilega jakkapeysu fyrir dömu, heklað hálsmen og úlnliðsskraut, hettupeysu á káta krakka og einstaka vettlinga fyrir ástfangna. Eygló Guðjónsdóttir framkvæmdarstjóri Leiðbeiningarstöðvar heimilanna býður lesendum upp á vandaða fræðslu um sykursýki II og vangaveltur um hvað það sé sem geri heimili að heimili. Ása Atladóttir skrifar um sumarþing Norrænu kvennasamtakanna sem haldið var í sumar og sagt er frá úrslitum í hönnunarkeppni um barmmerki Kvennafrídagsins 2010. Krossgáta Dollýar er á sínum stað og svo er fjallað um þá hættu sem okkur og heiminum öllum stafar af neyslu og kaupsýki.

Kvenfélagasamband Íslands hefur gefið Húsfreyjuna út í 60 ár, ritstjóri er Kristín Linda Jónsdóttir.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2