


| Húsfreyjan 1. tbl. 2010 komin út! | Senda á facebook |
|
|
|
|
Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar tímarits Kvenfélagasambands Íslands árið 2010 er komið út. Að vanda er tímaritið fjölbreytt og inniheldur áhugaverð viðtöl, fræðslu, ráðgjöf um matargerð og heilsu, uppskriftir og handavinnu, krossgátu og fréttir. Að þessu sinni eru aðalviðtölin við þær Guðbjörgu Jónsdóttur bónda á Læk í Flóahreppi og formann Búnaðarsambands Suðurlands og Guðrúnu Brynjólfsdóttur leikskólakennara á Álftanesi. Ásdís Birgisdóttir framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands á Blönduósi sér um handavinnuþátt Húsfreyjunnar en í honum má finna skemmtilegan prjónaðan kerrupoka, barnateppi, trefli og flottar heklaðar hænur. Margrét S. Sigurbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn Hollari matur með Margréti. Í honum er fjöldi uppskrifta, grafin lambavöðvi, snittur, fiskisúpa, fylltur lax, hnetusteik og kjúklingaréttir svo eitthvað sé nefnt. Eygló Guðjónsdóttir framkvæmdarstjóri Leiðbeiningarstöðvar heimilanna býður lesendum upp á vandaða og ítarlega fræðslu um hefðir og siði við borðhald. Fjallað er húfuverkefni Kvenfélagasambands Íslands, matjurtarækt og góð ráð við gigt. Krossgáta Dollýar er á sínum stað og fréttir af starfi íslenskra kvenna í kvenfélögum. Kvenfélagasamband Íslands hefur gefið Húsfreyjuna út í 60 ár, ritstjóri er Kristín Linda Jónsdóttir |
Formannaráð KÍ hefur samþykkt ályktun þess efnis að spara notkun plastpoka t.d. við innkaup og nota þess í stað taupoka sem tilvalið er að sauma t.d. úr gömlum pilsum.

