|
1. tbl. Húsfreyjunnar 2011 er komið út.
Forsíðuviðtal blaðsins er við Rúnu Magnúsdóttur ACC stjórnendamarkþjálfa og stofnanda Connected-Women.com og meðstofnanda BRANDit. Rúna hvetur konur til að vekja athygli á konum og hvetja þær til dáða og okkur öll til að gefa skýr skilaboð og hafa gaman af öllu því sem við gerum. Elsa Arnardóttir á Ísafirði, framkvæmdastjóri Fjölmenningarseturs, fjallar um setrið og segir lesendum af sjálfri sér og töfrum Ísafjarðar. Anna Forslund ráðgjafi í alþjóðavatnsmálefnum, búsett í Svíþjóð, fjallar um vatn veraldar. Eygló Guðjónsdóttir forstöðumaður Leiðbeiningastöðvar heimilanna fjallar um nauðsyn fitu í mat og mismunandi gerðir fitu. Bylgja Valtýsdóttir upplýsingafulltrúi Hjartaverndar fræðir um hjartasjúkdóma kvenna. María Gunnarsdóttir leikskólakennari í Garðabæ segir frá sínu lífi og starfi og kvenfélaginu sínu. Margrét S. Sigbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn: Hollt og hagkvæmt, þar er kennt að gera sushi, spennandi fiskréttir, innbakaður lambavöðvi og hrossasteik með skötusel, gulrótarterta, baka og skyrterta allt afar girnilegt. Þær Elínborg Proppé og Kristín Ólafsdóttir sjá um handavinnuna. Þar ber hæst glæsilega gula heklaða páskaskál og peysukápu á stúlku, auk þess eru þar flottar páskahænur og ungar, útsaumuð kort og smart hálsmen. Þá eru fréttir frá Kvenfélagasambandi Íslands og krossgáta Dollýar er á sínum stað.
|