


| Haustblað Húsfreyjunnar er komið út | Senda á facebook |
|
|
|
|
Haustblað Húsfreyjunnar, tímarits Kvenfélagasambands Íslands er komin út. Að þessu sinni eru aðalviðtölin við Torfhildi Rúnu Gunnarsdóttir sem lauk stúdentsprófi um sextugt og gekk af því tilefni Jakobsveginn, gönguleiðina löngu á Spáni og Mjöll Einarsdóttur kvenfélags og handavinnukonu á Selfossi. Eygló Guðjónsdóttir forstöðumaður Leiðbeiningarstöðvar heimilanna fjallar um nesti og hvað er nauðsynlegt að hafa í huga þegar við þvoum okkar þvott. Margrét S. Sigurbjörnsdóttir kennari sér um matreiðsluþáttinn: Hollt og hagkvæmt, þar eru meðal annars uppskriftir af villigæs, beyglum, heimagerðum osti og heitri salsasúpu fyrir haustkvöldin. Hildur Sveinsdóttir textílkennari sér um handavinnuþáttinn sem inniheldur hlýtt teppi, herrapeysu, stelpu tösku, húfu og hringtrefil. Einnig er í blaðin glæsileg uppskrift af bútasaums diskamottum fyrir jól og aðventu. Síðan eru fréttir frá Kvenfélagasambandi Íslands og krossgáta Dollýar er á sínum stað. Kvenfélagasamband Íslands hefur gefið Húsfreyjuna út í 62 ár, ritstjóri er Kristín Linda Jónsdóttir. |
Formannaráð KÍ hefur samþykkt ályktun þess efnis að spara notkun plastpoka t.d. við innkaup og nota þess í stað taupoka sem tilvalið er að sauma t.d. úr gömlum pilsum.

