|
35.landsþing KÍ haldið í Stykkishólmi 26.-28.júní 2009 hvetur til að unnið verði áfram að forvörnum á þann veg að þær nái til flestra þátta í lífi allra aldurshópa.
Greinargerð:
Stuðlað verði að fræðslu er lúta að áfengis og vímuvörnum, óhólflegri tölvunotkun, að bæta mataræði og hreyfingu, heilbrigðu kynlífi oþh. Mikilvægt er að efla uppfræðslu til foreldra og annarra þeirra sem eiga samskipti við börn og unglinga.
Landsþing Kvenfélagasambands Íslands, haldið í Stykkishólmi 26.-28. júní 2009 samþykkir eftirfarandi áskorun:
Undanfarið hefur verið vakin athygli á miklum tannskemmdum meðal íslenskra barna og unglinga. Þetta er alvarlegt mál sem hlýtur að tengjast neysluvenjum með beinum hætti ekki hvað síst neyslu á sætum drykkjum.
Kvenfélagskonur vilja skora á landsmenn að taka höndum saman til að breyta neysluvenjum þannig að vatni og mjólk sé haldið að börnum og unglingum að öllu jöfnu, en dregið úr neyslu safa og gosdrykkja. Þeir sem stjórna innkaupum fyrir heimili og skóla geta haft áhrif á að stuðla að breyttum neysluvenjum.
Bæta þarf aðgengi að drykkjar¬vatni í skólum, íþróttamiðstöðvum, sundlaugum og öðrum fjölmennum stöðum t.d. með því að koma upp vatnshönum og vatnsvélum.
Ályktanir úr hópi um umhverfismál:
35. landsþing Kvenfélagasambandi Íslands hvetur alla landsmenn til að kynna sér þau flokkunarúrræði sem í boði eru í sveitarfélögum og endurnýta umbúðir eins og kostur er.
35. landsþing Kvenfélagasambandi Íslands hvetur Samtök iðnaðarins, samtök matvælaframleiðenda og innflytjenda til að pakka vörum ekki í margfaldar umbúðir.
35. landsþing Kvenfélagasambandi Íslands hvetur sveitarfélög til að hvetja umhverfisnefndir sínar til skilvirkni og hvetji þegnana til að huga vel að ásýnd sveitanna . Þær sjái til þess að bændur og hestamenn hirði vel um rúlluplast og annað sem því fylgir og komi í endurvinnslu.
35. landsþing Kvenfélagasambandi Íslands hvetur Leiðbeiningastöð heimilanna til að upplýsa um aðferðir til orkusparnaðar.
35. landsþing Kvenfélagasambandi Íslands hvetur Leiðbeiningastöðina til að kanna hvort svipaður vettvangur og Góði hirðirinn sé starfræktur í öðrum héruðum.
35. landsþing Kvenfélagasambandi Íslands hvetur kvenfélagskonur til að sauma margnota innkaupapoka úr efnisafgöngum eða notuðum flíkum og draga þannig úr plastnotkum. Augljóslega væri þarna um góða fjáröflunarleið að ræða.
Samþykktar tillögur frá hóp sem fjallaði um leiðbeingastöð heimilanna.
35.landsþing KÍ haldið í Stykkishólmi 26.-28. Júní 2009 hvetur til þess að áfram verði unnið að uppbyggingu heimasíðu Leiðbeiningarstöðvar heimilanna. Reynt verði að á sjálfboðaliða til að tölvuvinna það efni sem til er í efnisbanka LH.
35.landsþing KÍ haldið í Stykkishólmi 26.-28.júní 2009 hvetur til þess að virkja betur tenglapýramída sem felst í starfi kvenfélaganna með tölvupóstsendingum.
Samþykktar tillögur frá starfshópi um starf kvenfélaganna.
35.landsþing KÍ, haldið í Stykkishólmi 26.-28.júní 2009 beinir því til stjórnar KÍ að útbúa kynningarefni um starf kvenfélaganna. Stjórnir félaganna gætu þá nýtt sér það við kynningu í skólum og víðar.
35.landsþing KÍ haldið í Stykkishólmi 26.28.júní 2009 beinir því til kvenfélaganna að kynna betur störf sín í samfélaginu. Samskipti við fjölmiðla þarf að efla, nýta netmiðla og stofna heimasíður.
35.landsþing KÍ haldið í Stykishólmi dagana 26.-28.júní 2009 beinir því til kvenfélaganna að hlúa vel að félagskonum sínum þannig að þær verði öflugri að gefa af sér út í samfélagið á þessum umbrotatímum.
Aðrar tillögur.
„Áskorun til félagskvenna"frá 35. landsþingi KÍ.
Starfsemi kvenfélagasambands Íslands hefur sjaldan verið mikilvægari en nú. Landsþingið hvetur kvenfélögin til að efla innra starf sitt. Fjölga félagskonum sem styrkja munu starfið, en taka jafnframt tillit til þeirra kvenna sem vilja/þurfa að vera BLÚNDUR. „Bökum betra samfélag"
35. landsþing Kvenfélagasambands Íslands leggur til að við stjórn sambandsins að skipuð verði starfshópur er vinni samanburð á fjölda kvenfélagskvenna og fjölda kvenna í þéttbýli og dreyfbýli á Íslandi.Einnig að starfshópurinn kæmi með tillögur sem geti aukið áhuga þeirra kvenna á Íslandi sem ekki eru í kvenfélögum til þátttöku í starfi þeirra. Tillögurnar verði raunhæfar, auðveldar og fljótvirkar í framkvæmd. Starfshópurinn skili áliti ekki síðar en fyrir aðalformannaráðsfund KÍ vorið 2010.
35.landsþing Kvenfélagasambands Íslands beinir þeirri ósk til stjórnar KÍ þær nýjungar sem komið hafa fram í starfshópunum um KÍ, kvenfélögin, Húsfeyjuna og leiðbeiningarstöðina verði settar i verkefnið Nýtt KÍ og þá í viðeigandi kafla.
35.landsþing KÍ felur stjórn að velja í tilefni 80 ára afmælis KÍ að 1.febrúar árlega yrði dagur kvenfélaganna til að heiðra störf kvenfélagskvenna á Íslandi fyrr og nú.
|