|
Kvenfélagasamband Íslands er aðili að Norrænu kvennasamtökunum, NKF og Alþjóðasambandi dreifbýliskvenna, ACWW.
Norrænu kvennasamtökin Nordens Kvinneforbund - NKF (hét áður Nordens husmoderforbund) Norrænu kvennasamtökin voru stofnuð árið 1919 og gekk KÍ til liðs við þau árið 1949. Norðurlöndin skiptast þar á formennsku, sökum fjárskorts tók Ísland þó ekki við formennsku fyrr en árið 1976 er Sigríður Thorlacius, þáverandi forseti KÍ, varð formaður samtakanna. Á árunum 1996-2000 var Drífa Hjartardóttir þáverandi forseti KÍ formaður þeirra.
Árlega er haldið sumarþing NKF og er þar tekið á þeim málefnum sem NKF og aðildarsamtök þeirra láta sig varða. Þingin eru haldin til skiptis á Norðurlöndunum. Sumarið 2008 var NKF þing haldið á Akureyri og var yfirskrift þess „Fleiri karla í kvennaliðið”- jafnrétti - heilsa - hannyrðir. Á Norrænu þingunum gefst gott tækifæri til að kynnast Norrænum kvenfélagskonum og starfi kvenfélaga þeirra. Einnig er lagt upp með að umhverfi þess staðar sem námskeiðið er haldið á sé kynnt fyrir þátttakendum og er ávallt farin kynnisferð um nágreni staðarins og oftast er þinggestum boðið á í heimsókn á heimili kvenfélagskvenna.Sumarið 2012 verður NKF þingið haldið í Reykjavík dagana 8. - 10. júní.
Alþjóðasamband dreifbýliskvenna Associated Country Women of the World - ACWW Alþjóðasamband dreifbýliskvenna (ACWW) var stofnað árið 1929 (hét áður Alþjóðasamband húsmæðra) KÍ gerðist aðili að ACWW árið 1980. ACWW heldur alþjóðaþing á þriggja ára fresti, síðast var það haldið í Hot Springs, Arkansas í Bandaríkjunum dagana í apríl 2010. Fulltrúaráðsfundir eru haldnir tvisvar á milli þinga og svæðisþing Evrópusambanda ACWW eru haldin á þriggja ára fresti. Næsta Evrópuþing verður haldið í Dublin á Írlandi í apríl nk. Um 9 milljónir kvenna í 70 löndum um allan heim eru meðlimir í ACWW, hafa samtökin staðið að mörgum þörfum og merkum málefnum, eitt af því er stuðningur við konur í s.k. þróunarríkjum.
|