|
Þótt margt hafi breyst í starfi og áherslum KÍ undanfarin ár er grunnurinn og hugmyndafræðin, sem KÍ byggði á í upphafi, óbreytt.
Upphafleg markmið KÍ voru þau helst:
a) Að efla húsmæðrafræðslu og heimilisiðnað í landinu með hvatningu, fjárstyrk og eftirliti.
b) Að koma á samvinnu milli kvenfélaga.
c) Að vera á verði um hag íslenskra heimila.
d) Að styðja í hvívetna að uppeldis- og fræðslumálum, mannúðar-, menningar-, jafnréttis- og heilbrigðismálum.
Helstu markmið KÍ í dag eru:
- Að standa vörð um hag og heilsu íslenskra heimila
- Fylgjast með opinberum ákvörðunum í uppeldis- og fræðslumálum, heilbrigðis- og tryggingamálum, skatta-, atvinnu- og launamálum.
- Taka afstöðu til jafnréttis-, mannréttinda-, ræktunar- og umhverfismála.
- Vinna að neytendamálum með starfrækslu Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
- Að stuðla að aukinni samvinnu kvenna, efla félagsvitund þeirra og vinna að málum sem félagsheildin ákveður hverju sinni
- Sameina og samræma starfsemi aðila landssambandsins.
- Vinna að fræðslustarfsemi með útgáfu, fundum, ráðstefnum og námskeiðum.
- Hafa umsjón með framkvæmd ýmissa mála sem Alþingi og ríkisstjórn fela sambandinu
- Að vinna að stefnumálum Norrænu kvennasamtakanna (NKF) og Alþjóðasambands dreifbýliskvenna (ACWW) svo sem kostur er hverju sinni.
|