


| Dagskrá: Norrænt þing kvenfélaga, Reykjavík 8. - 10. júní 2012 | Senda á facebook |
|
|
|
|
NORRÆNT SUMARÞING KVENFÉLAGA, HÓTEL REYKJAVÍK NATURA, 8. – 10. JÚNÍ 2012 Þema þingsins er: KRAFTUR KVENNA Kvenfélagasamband Íslands skipuleggur þingið sem er haldið til skiptis á Norðurlöndunum. Fyrirlestarar fara fram á norrænum tungumálum og verður þess gætt að efni fyrirlestranna verði tiltækt fyrir ráðstefnugesti á íslensku og öðrum norðurlandamálum. Dagskrá:Föstudagur 8. júní
12.00 – 13.30 Hádegisverður á Hótel Natura
14.30 – 15.00 Kaffi Laugardagur 9. júní
12.30 –13.30 Hádegisverður á Hótel Natura Sunnudagur 10. júní Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar Almennar upplýsingarÞinggjald er 20.500 kr. ef pantað er fyrir 12. apríl en 22.500 kr eftir það. Innifalið er ráðstefnugögn, kaffi í fundarhléum, tveir hádegisverðir, hátíðarkvöldverður, samvera á heimilum á höfuðborgarsvæðinu, heimsókn á Bessastaði, ferð um Reykjavík í Þjóðminjasafnið, Þvottalaugarnar og Verbúðirnar. Daggjald fyrir 8. júní er 8000 kr. Innifalið er ráðstefnugögn, hádegisverður, kaffi e.h., ferð um Reykjavík og samvera á heimilum. Daggjald fyrir 9. júní er 9000 kr. Innifalið er ráðstefnugögn, kaffi f.h., hádegisverður, heimsókn á Bessastaði. Hátíðarkvöldverður, Hótel Reykjavík Natura 7900 kr. Gisting, Hótel Reykjavík Natura í eins manns herbergi með morgunverði, pr. nótt 23.800 kr. Ferð í Bláa lónið, rúta til og frá Hótel Reykjavík Natura ásamt aðgangi í Lónið 6.300 kr. Skráningareyðublað verður að finna hér á heimasíðunni frá 25.mars nk. Kvenfélagasambandið hvetur kvenfélagskonur til að taka þátt í sumarþinginu.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. |

Áskrift að Húsfreyjunni kostar 4.100 krónur á ári fyrir fjögur tölublöð sé greitt með greiðslukorti en 4.300 krónur ef óskað er eftir að greiða í gegnum innheimtukerfi banka/ greiðsluseðill.