Námskeið í félagsmálafræðslu á Hvanneyri 26.-27. nóvember nk.

Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Hvanneyri dagana 26.-27. nóvember nk. í kennslustofu í Fjósinu á Hvanneyri. Námskeiðið hefst klukkan 18 og stendur til 22 báða dagana.
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.  Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum. Kvenfélagskonur eru hvattar til að taka þátt í námskeiðunum. Skráningar og frekari upplýsingar um verkefnið  er að fá hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og  Sigurði í síma 861-3379 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Upplýsingar um námskeiðisstaði í vetur: http://www.umfi.is/veftre/fraedsla/syndu_hvad_i_ther_byr/

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands