Að loknu 35. landsþingi KÍ

35. landsþing Kvenfélagasambands Íslands var haldið í Stykkishólmi dagana 26.-28. júní sl.

Yfirskrift þingsins var „Konur kalla á jákvæð gildi -aukna umhverfisvitund og skemmtileg kvenfélög”

Þingið var haldið í miklu blíðskaparveðri og skartaði Stykkishólmur sínu fegursta þá daga sem þingið stóð yfir. Á það einnig við um heimamenn, þjónustuaðila og aðra sem áttu þátt í að þingið var bæði glæsilegt og vel heppnað. Gestjafi landsþings að þessu sinni var Kvenfélagasamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu. Þingið sóttu um 120 konur af öllu landinu.

Sigurlaug Viborg forseti Kvenfélagasambandsins setti þingið í Vatnasafninu, Ester Gunnarsdóttir varaformaður Kvnefélagasambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu bauð þinggesti velkomna og verndari Kvenfélagasambands Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands flutti ávarp. Í ávarpi sínu sagði m.a. að þótt síðari tímar hafi kollvarpað ýmsu og öðru breytt þá þyrfti samfélagið enn ríkulega á framlagi kvenfélagskvenna að halda, einmitt nú þegar þjóðin kallar eftir gömlum og góðum gildum sem áður reyndust farsælt veganesti og leiðsögn á erfiðum tímum.
Tónlistarmenn af Snæfellsnesi stjórnuðu fjöldasöng og spiluðu undir og bæjarstjóri Stykkishólms, Erla Friðriksdóttir ávarpaði gesti og fræddi þá um Vatnasafnið. Léttar veitngar voru í boði bæjarstjórnar Stykkishólms.

Þingstöf fóru fram í Hótel Stykkishólmi, auk venjulegra aðalfundarstarfa og lagabreytinga voru flutt framsöguerindi tengd yfirskrift þingsins. Hansína B. Einarsdóttir afbrotafræðinur og Cand mag í stjórnun og skipulagningu verkefna, flutti erindið, Allt – þar á milli – fjallaði það um hlutverk kvenfélaganna í breyttri heimsmynd.  
Þóra Bryndís þórisdóttir, meistaraprófsnemi og BA í sálfræði, fyrrum verkefnisstjóri Vistverndar í verki hjá Landvernd flutti erindi um umhverfismál og hvað hægt er að leggja af mörkum til umhverfisverndar. Þórhildur Þórhallsdóttir félags og menntunarfræðingur fjallaði m.a.  um kvenleg gildi í erindi sem hún nefndi Kjarnorkukvendi eða kveifarsál.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir félagsfræðingur og ferðamálafræðingur flutti erindi sem hún nefndi „Frá hjartanu“ og fjallaði um afl og visku kvenna – hversu mikilvægt það er á breyttum tímum. 

Málefnahópar á þinginu fjölluðu um störf kvenfélaganna, starfssemi Kvenfélagasambands Íslands og Leiðbeiningastöðvar heimilanna og um umhverfismál. Ályktanir hópanna voru svo lagðar fyrir þingið. Konur voru hvattar til þess að efla kynningu á kvenfélögunum og gera störf þeirra sýnilegri.  Með því yrðu félögin aðgengilegri fleiri konum um leið og almenningur fengi upplýsingar um hin fjölmörgu góðu málefni sem kvenfélögin vinna að.
Kvenfélagasamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu bauð þingfulltrúum í kvöldverð og siglingu um lygnan Breiðafjörðinn á föstudagskvöldið. Í þeirr ferð gat að líta fjölbreytt fuglalíf og mikla náttúrufegurð sem heillaði þinggesti.

Á hátíðarkvöldverði landsþingsins lýsti Sigurlaug Viborg forseti KÍ kjöri þriggja heiðurfélaga Kvenfélagasambandsins. Þeirra Drífu Hjartardóttur fyrrverandi forseti KÍ, Helgu Guðmundsdóttur, einnig fyrrverandi forseti KÍ og Kristínar  Guðmundsdóttur fyrrverandi framkvæmdastjóri KÍ. Allar hafa þær lagt mikið og óeigingjarnt starf af mörkum fyrir Kvenfélagasambandið.  Fengu þær afhent heiðursskjöl og heiðursmerki KÍ.

Á þinginu var Sigurlaug Viborg forseti Kvenfélagasambandsin endurkjörin, Margrét Baldursdóttir Kvenfélaginu Hlíf á Akureyri var kjörin gjaldkeri og Ester Gunnarsdóttir Kvenfélagi Ólafsvíkur var kjörin meðstjórnandi. Úr stjórn gengu þær Sara Hólm gjaldkeri og Guðbjörg Ósk Jónsdóttir meðstjórnandi. Stjórn Kvenfélagasambands Íslands skipa nú Sgurlaug Viborg forseti, Una María Óskarsdóttir varaforseti, Ása Steinunn Atladóttir ritari, Margrét Baldursdóttir gjaldkeri og Ester Gunnarsdóttir meðstjórnandi, varastjórn skipa Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir og Ásthildur Thorsteinsson.

Þingslit fóru fram í Stykkishólmskirkju kl. 14 á sunnudeginum.

 

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands