Norrænt sumarþing í Gautaborg í ágúst

Norrænt sumarþing kvenfélaga verður haldið í
Gautaborg í Svíþjóð 19. – 21. ágúst 2011

Þema þingsins er „ Hið lífsnauðsynlega vatn”  Fyrirlesarar á þinginu nálgast þemað með ólíkum hætti. Gestgjafi þingsins er Riksförbundet HEM OCH SAMHÄLLE í Svíþjóð.

Kvenfélagasamband Íslands skipulegur hópferð á þingið 18. – 22. eða 25. ágúst nk.
Flogið verður með Iceland Express beint til Gautaborgar, brottför er frá Keflavík,  fimmtudaginn 18. ágúst kl. 07.20 og komið til Gautaborgar um hádegisbil. Þingið hefst kl. 9 föstudaginn 19. ágúst og lýkur um hádegi á sunnudag. Hægt er að velja um heimferðardagana 22. eða 25. ágúst en flogið er beint til Keflavíkur um hádegisbil og lent þar kl. 14.10

Verð fyrir flug er kr. 46.300 –
Ráðstefnugjald er 3.900 sænskar krónur, (71.400 m.v. gengi 24. feb.) ef gist er í tveggja manna herbergi og 4.900 (89.300 m.v. gengi 24. feb.) ef gist er í eins manns herbergi. Innifalið í því eru 2ja nátta gisting, allar máltíðir meðan á ráðstefnunni stendur, bátsferð, ferð um miðbæ Gautaborgar, fyrirlestrar og ráðstefnugögn.

Við bætist: gisting í 2 eða 5 auka nætur og ferðir til og frá flugvelli. Gisting á hótelinu kostar SKR: 1200 í eins manns herbergi pr. nótt og SKR: 700 pr. nótt á mann ef gist er í tveggja manna herbergi. Mögulega má finna ódýrari gistingu næturnar eftir þingið.

Skráning og kostnaður:
Framlengdur skráningarfrestur
Skráning á þing og í flug og greiðsla þátttökugjalda fer fram hjá Kvenfélagasambandi Íslands til 16. maí nk.netfang:  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Flug skal greiða til Icelandexpress fyrir lok júní nk.

Dagskrá........

............með fyrirvara um breytingar: 

Föstudagur 19. ágúst

09:30  Ferð um miðborgina

12:00  Hádegisverður

13:30  Anita Tallroth, starfandi yfirþjóðgarðsvörður – „Arfleifð
                   sjávarveraldarinnar“

14.30  Kaffi

15:00  Annika Malm, Verkefnisstjóri hjá Vatnsveitu Gautaborgar - " Hið
                   lífsnauðsynlega vatn“

18:00  Bátsferð


Laugardagur 20 ágúst

09:30  Guy Heyden,  emeritus prófessor í bæklunalækniningum, "Vatn -
                   uppspretta lífs og örlagagildra"

12:00 Hádegisverður

13:30  Dagskráratriði enn ekki auglýst

15.00  Kaffi

19:00  Kvöldverður og skemmtun


Sunnudagur 21. ágúst

10:00  Johannes Marainen fyrrverandi rektor - "Líf í tveimur
                   menningarheimum" - um að alast upp í Samasamfélaginu og
                   verða síðar stórborgarbúi.

12:00  Ráðstefnulok og hádegisverður

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands