Stefnumót við stjórnmálaflokka - kynbundið ofbeldi

Örstutt erindi flytja Guðrún Jónsdóttir Stígamótum, Ása Ólafsdóttir
lögfræðingur og Kristín Ástgeirsdóttir forstöðumðaur RIKK.

Pallborðsumræður með fulltrúm stjórnmálaflokkanna.
Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir læknir.

Að fundinum standa: Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarfið, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Neyðarmóttaka
vegna nauðgana, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ, Samtök
kvenna af erlendum uppruna, Stígamót og UNIFEM á Íslandi.

Framundan eru kosningar til Alþingis. Hver er stefna stjórnmálaflokkannah vað varðar kynbundið ofbeldi og aðgerðir gegn því? Á að samþykkja nýjan
kafla um kynferðisofbeldi eins og hann liggur fyrir Alþingi en samkvæmt honum er kaup og sala á vændi löglegt? Hvað líður framkvæmdaáætlun
ríkisstjórnarinnar gegn kynferðisofbeldi? Hvað er hægt að gera til að bæta réttarkerfið? Hvernig á að bæta rannsókn kynferðisbrotamála þannig að þau
skili sér inn í réttarkerfið? Hvernig má styrkja stöðu brotaþola enn betur?  Á að hækka lágmarksrefsingar í kynferðisbrotamálum? Hvað um fyrirbyggjandi
aðgerðir?

Ekki þarf að rifja upp hve miklar og skelfilegar upplýsingar hafa komið fram undanfarin ár um kynferðislegt ofbeldi, ekki síst gegn börnum. Hvar liggja
ræturnar, hvar erum við stödd og hvernig á að bregðast við til að byrgja brunninn? Allt þetta verður til umræðu á fundinum sem er sá fyrsti í röð
funda þar sem rætt verður við stjórnmálaflokkana um málefni sem snert jafnrétti kynjanna og öryggi kvenna og barna.

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands