Góð efni til að ná úr blettum:
Salmíaksspíritus, vetnisperoxíð (bleikiefni), terpentína (vatnsuppleysanleg), asetón, hreinsað bensín og brennsluspritt. ATHUGIÐ VEL að þessi efni tilheyra eiturefnum og ber að meðhöndla með varúð og skulu ætíð geymd þar sem börn ná alls ekki til.
Náttúruvæn blettaefni eru aftur á móti: Sítróna (náttúrlegt bleikiefni), glýserín, edik, kristalssápa, uppþvottalögur. Einnig duga matarsódi, salt, talkúm og fleira sem til er á heimilinu, á margskonar bletti.
Tannkrem og aska eru ágætisfægiefni á rispur o.fl.
Munið að ef vatn er notað til að ná úr blettum eða við lok blettahreinsunar, er best að hita/sjóða kalt vatn úr krananum í stað hitaveituvatns, sem vill skilja eftir rönd í kringum staðinn sem bletturinn var á.
Rauðvínsblettir: Byrja á að þurrka mesta vökvann upp. Strá salti eða matarsóda yfir blettin og láta þorna. Skola og þvo á venjulegan hátt. Það virkar líka vel ef um fatnað er að ræða, að bera litlausan mildan uppþvottalög eða kristalssápu á blettinn (bleyta upp i honum ef hann er orðin þurr), láta síðan flíkina í plastpoka, loka honum vel og láta bíða yfir nótt. Skola vel og þvo. Hella má hvítvíni strax yfir rauðvínsblett eða nota sódavatn og þurrka upp með svampi. Þvo síðan. Eitt ráð er líka að bera glýserínupplausn (blandað til helminga á móti vatni), láta liggja á um stund og skola vel með volgu vatni. Ef enn hattar fyrir bletti er uppþvottalögur ágætur til að honum af.
Tómatsósa: Láta kalt vatn renna á blettinn, nota mildan uppþvottalög í og þvo síðan.
Karrí: Það inniheldur túrmerik sem er mjög litsterkt og getur verið erfitt að ná því úr. Best að nudda glýserínupplausn og láta bíða um 1/2 klst. Skola þá vel og þvo. Ef bletturinn hverfur ekki er ráð að reyna vetnisperoxíðsupplausn (1 hl. á móti 6 af köldu vatni). Þvo síðan vel.
Súkkulaði: Best er að láta súkkulaðið þorna og skafa með bitlausum hníf. Bleytið vel í blettinum og berið t.d. uppþvottalög á hann og setjið flíkina í plastpoka og lokið vel. Má bíða þannig í nokkra klukkutíma. Skolað vel úr og flíkin þvegin á venjulegan máta.
