Námskeið í félagsmálafræðslu á Ólafsfirði 12.-13. nóvember

Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Ólafsfirði dagana 12.-13. nóvember í UÍÓ-húsinu. Námskeiðið hefst klukkan 18 og stendur til 22 báða dagana. Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.  Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum. Ákveðið hefur verið að halda félagsmálanámskeið í Fjósinu á Hvanneyri dagana 26.-27. Nóvember.Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og  Sigurði í síma 861-3379 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands