Kvenfélagasamband Íslands fagnar 80 ára afmæli sínu og degi kvenfélagskonunnar mánudaginn 1. febrúar

Í tilefni dagsins verður opið hús í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum,
Túngötu 14  kl. 17 - 19 á afmælisdaginn en stutt hátíðadagskrá hefst kl.18.  
Boðið verður upp á kaffi og kökur að gömlum íslenskum sið. 
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og eru konur hvattar til að koma 
og kynna sér störf kvenfélagnna og leggja þeim lið. 

Kvenfélagskonur um land allt munu halda uppá afmælið hvert með sínum hætti á
afmælisárinu. Aðalverkefni afmælisársins er Húfuverkefni KÍ sem snýst um að
kvenfélagskonur prjóna húfur, sem allir nýburar sem fæðast á Íslandi á
afmælisárinu fá að gjöf, ásamt hlýrri kveðju frá KÍ. 
 

Kvenfélagasambandið var stofnað árið 1930 sem sameiningar og
samstarfsvettvangur kvenfélaganna í landinu sem þá þegar voru orðin
fjölmörg. Fyrsta kvenfélagið, Kvenfélag Rípurhrepps, var stofnað árið 1869.

Konur hafa síðan þá stofnað hundruð kvenfélaga með það að markmiði að bæta
samfélagið, sérstaklega hvað varðar málefni barna, kvenna og fjölskyldna.
Má segja að konur hafi með því tekið völdin í sínar hendur löngu áður en þær
fengu aðgengi að stjórnkerfinu með kjörgengi og kosningarétti. 
Störf kvenfélagskvenna eru og hafa verið  samfélaginu öllu afar mikilvæg þó
ekki hafi þau alltaf farið hátt eða mikið farið fyrir þeim í fjölmiðlum.
Það er því löngu tímabært að sérstakur dagur sé helgaður kvenfélagskonum og
hefur formannaráð Kvenfélagasambands Íslands einhliða lýst 1. febrúar, ár
hvert, „Dag kvenfélagskonunnar.”

Kvenfélagasambandið hvetur allar kvenfélagskonur til að halda daginn
hátíðlegan og landsmenn alla til að heiðra kvenfélagskonur þennan dag.

Kvenfélögin innan KÍ eru nú tæplega 200 og starfa innan 17 héraðssambanda um
land allt.

Kvenfélagasambandið gefur út tímaritið Húsfreyjuna og rekur Leiðbeiningastöð
heimilanna sem veitir gjaldfrjálsa símaráðgjöf og upplýsingamiðlun um flest
það er lítur að heimilishaldi.
Kvenfélagasamband Íslands tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi kvenfélaga og er aðili að
Alþjóðasambandi dreifbýliskvenna, ACWW og Norrænu kvennasamtökunum, NKF.

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands