Í tilefni 100 ára afmælisins buðu kvenfélagskonur í Kvenfélagi Álftaness, bæjarbúum og öðrum gestum í kaffisamsæti í Lambamýri sem er ný félagsmiðstöð aldraðra á Álftanesi á kosningadaginn 16. maí síðastliðin.
Boðið var upp á kaffi og kökusneið. Fjölmargir mættu, meðal annars bæjarstjóri Garðabæjar, Almar Guðmundsson og sýndu þannig Kvenfélaginu virðingu og þakklæti fyrir það starf sem félagið vinnur í samfélaginu.
Guðrún Brynjólfsdóttir, formaður Kvenfélagsins var þar uppáklædd í þjóðhátíðarkyrtil félagsins. Kyrtillinn var vígður á 17. júní 1989. En á þeim tíma hét félagið Kvenfélag Bessastaðahrepps, Þegar nafni Bessastaðahrepps var formlega breytt þann 17. júní 2004 í Sveitarfélagið Álftanes var nafni kvenfélagsins einnig breytt og hefur félagið verið kennt við Álftanes upp frá því. Félagið var stofnað á Bessastöðum 25. apríl 1926. Fyrsti formaður var Elín Vigfúsdóttir, húsfreyja á Bessastöðum.
Til gamans má geta að í nóvember 1980 gekk forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, í kvenfélagið. Eliza Reid gekk svo í félagið þegar maður hennar Guðni Th. Jóhannesson var forseti.
Áður höfðu þær haldið upp á afmælið á afmælisdaginn 25. apríl í boði á Bessastöðum, þar sem frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands tók á móti félagskonum.
Hamingjuóskir enn og aftur með 100 árin!

Formaður Kvenfélags Álftaness, Guðrún Brynjólfsdóttir og Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands.

Kvenfélagskonur taka á móti bæjarstjóranum, Almari Guðmundssyni.

Heiðursfélagi Kvenfélags Álftaness, Elín Jóhannsdóttir og formaður Guðrún Brynjólfsdóttir.



