Hringnum lokað - Gjöf til allra kvenna

Gjöf til allra kvenna á Íslandi sem safnað var fyrir í tilefni 90 ára afmælis Kvenfélagasambands Íslands hefur nú verið afhent á alla 7 fæðingarstaði á landinu. Hringnum var lokað er formleg afhending fór fram 8. september 2026, á Fjórðungssjúkrahúsiu á Neskaupsstað. Heilbrigðisstofnun Austurlands bauð í móttöku þann dag til að þakka fyrir þær gjafir sem borist hafa til þeirra á árinu. 

Þetta er síðasti afhendingarstaðurinn og kerfið því komið í fulla notkun á öllum fæðingarstöðum á landinu.

Í tengslum við söfnunina 2020 náðist að safna  samtals um 30 milljón króna. Ákveðið var að nota þær til kaupa á tækjakosti og hugbúnaði (Milou) honum tengdum, sem stuðlar að bættri heilsuvernd kvenna um land allt. Þessi hugbúnaður verður  settur upp á 7 fæðingarstöðum á landinu. Þó svo að fæðingastaðir séu tækjum búnir fyrir sína starfsemi bætist nú við hugbúnaður sem gefur möguleika á að sjúkraskrárgögn sem tengjast fósturhjartsláttarritum og sónarniðurstöðum er nú hægt að vista miðlægt. Einn af stóru kostunum  við hugbúnaðinn er,  að þessi tækni getur komið í veg fyrir að senda þurfi konur jafnvel um langan veg til til frekari skoðunar.  Niðurstöðurnar eru á rafrænu formi og  hægt er að nálgast þær og skoða þar sem meiri  sérhæfing er til staðar.

Fósturhjartsláttarritin er hægt að sjá í rauntíma og fá þar með eftir öruggum leiðum faglegt álit frá hærra þjónustustigi, eins og t.d.hjá Kvennadeild LSH eða á Akureyri.  Ekki þarf lengur að prenta út ritin og fleiri geta séð þau hvort heldur er inni á fæðingarstofunni þegar konur eru  í fæðingu, eða þegar  sinnt er  eftirliti með fóstri á meðgöngu eða vegna einhverra áhættuþátta.  Það að hafa sjúkraskrárgögn vistuð miðlægt er gríðarlega mikið öryggisatriði fyrir konur bæði í meðgöngu og fæðingu.  Með því móti er alltaf hægt að nálgast mikilvægar upplýsingar og einnig eru þær vistaðar með ábyrgum og löglegum hætti. Hægt er að meta gögnin hvenær sem er, í rauntíma og milli skoðana auk þess sem þessi gögn fylgja rafrænni meðgönguskrá konunnar.

Söfnunin 2020 var mikil áskorun á þeim tíma er Covid var í algleymingi. En ekki síður hefur það verið áskorun að koma kerfinu upp á alla fæðingarstaði. Björk Steindórsdóttir, ljósmóðir á HSU hefur verið KÍ innan handar við það verkefni ásamt fjölmörgum öðrum innan heilbrigðiskerfisins og er þeim þakkað fyrir góða vinnu. 

 
Konur í Sambandi austfirskra kvenna voru viðstaddar og tóku vel á móti fulltrúum Kvenfélagasambands Íslands er afhending fór fram á Neskaupstað. 
Það voru þær; Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti KÍ, Elinborg Sigurðardóttir, ritari afmælisnefndar, Jenný Jóakimsdóttir, starfsmaður KÍ og Björk Steindórsdóttir, ljósmóðir sem skelltu sér austur til að vera viðstaddar afhendinguna. Þær nýttu líka ferðina og heimsóttu Hallormsstaðaskólann. Skelltu sér í  fjallgöngu að Höllusteini. Skoðuðu Lystigarðinn í Neskaupstað, sem Kvenfélagið Nanna stofnaði 1934. Sólin skein og móttökurnar frábærar. Takk fyrir yndislegan dag.
 
 
 
 
 
 
 

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2024 Kvenfélagasamband Íslands