Haustblað Húsfreyjunnar er komið út og stútfullt af efni

Haustblað Húsfreyjunnar er nú komið út og er komið eða á leið inn um lúgur áskrifenda.

Húsfreyjan er að venju stútfull af einlægum viðtölum og fróðlegu efni.

Dagný Pétursdóttir í Borgarnesi er í forsíðuviðtali. Hún sinnir í dag lýðheilsueflingu af ýmsu tagi og leiðir gusuathafnir í Fólkvanginum Einkunnum norðan við Borgarnes.

Í blaðinu ræðum við einnig við Aðalbjörgu Erlendsdóttur, sem flestir þekkja sem Buddu. Hún sýnir þessa dagana einstaka púða og veggteppi í Borgarbókasafninu í Árbæ. Hún notar litríkt mósaík- og frjálst hekl í sinni sköpun.

Sigríður Sigurðardóttir, frá Stóru-Ökrum í Skagafirði, var safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ í 31 ár. Hún er í áhugaverðu viðtali og segir frá sínum störfum og áhugamálum. Sigríður var sæmd íslensku fálkaorðunni fyrir framlag sitt til varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.

Dagmar Elín, forseti Kvenfélagasambands Íslands, segir frá ferð sem hún ásamt átta öðrum kvenfélagskonum fór á heimsþing ACWW, sem haldið var í Ottawa í Kanada í vor.

Lára Magnea Jónsdóttir, sem sér um hannyrðaþátt Húsfreyjunnar, býður upp á uppskriftir að fallegri húfu fyrir haustið og klassíska vestfirska vettlinga. Vettlingana kallar hún Laufaviðarvettlinga. Hún er einnig með fallegt útsaumsmynstur í haustlegan púða.

Albert Eiríksson skellti sér í katalónskt matarboð til Sigurlaugar Margrétar útvarpskonu. Sigurlaug deilir með lesendum girnilegum uppskriftum frá Katalóníu.

Hrafnhildur Sunna Eyþórsdóttir ræddi við Húsfreyjuna um súrrealisma og smjörkrem en hún fékk það skemmtilega verkefni í sumar að starfa við Skapandi sumarstörf í Kópavogi. Þar bakaði hún og skreytti kökur sem eru innblásnar af ævintýraheimum breska listamannsins Rogers Dean.

Hrund Valgeirsdóttir næringarfræðingur skrifar fróðlegan pistil um af hverju sykurlöngun kviknar á haustin.

Húsfreyjan ræðir við höfunda bókanna Mæðrun – sýnisbók sem Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar og Áfall hvað svo, þar sem dr. Sigrún Sigurðardóttir skrifar á nærgætinn hátt um viðkvæmt málefni sem öll ættu að geta tengt við. Þær gefa báðar sínar bækur út sjálfar.

Húsfreyjan fjallar að auki um Viku einmanaleikans sem hefst 2. október á næstu viku og flytur lesendum Kvenfélagsfréttir. Smásagan er á sínum stað og Krossgátan, ásamt ýmsu öðru áhugaverðu lesefni.

 

Skráðu þig í áskrift hér: https://www.kvenfelag.is/husfreyjan/gerast-askrifandi

 

Njótið lestursins og haustsins.

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2024 Kvenfélagasamband Íslands