Kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal, færði fæðingadeild Fjórðungssjúkrahússins
á Ísafirði Bilibed ljósarúm á föstudag. Rúmið er ætlað til notkunar við
að meðhöndla gulu í nýburum. Gula stafar af því að styrkur
galllitarefna eða gallrauða, svonefndu bílirúbíns, í blóðinu verður
óeðlilega hár. Allir nýburar fá slíka hækkun á fyrstu sólarhringunum
eftir fæðingu og um helmingur þeirra fær sýnilega gulu. Hjá fyrirburum
er þetta hlutfall hærra og flestir þeirra fá gulu. „Er þetta frábær
gjöf sem kemur sér afskaplega vel enda nokkuð um að nýburar fái
einhvern snert af gulu fyrstu dagana. Vill Starfsfólk stofnunarinnar og
sérstaklega fæðingadeildarinnar færa Kvenfélaginu innilegar þakkir en
þess má geta að þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem Kvenfélagið
styrkir starfsemi sjúkrahússins“, segir í tilkynningu sjúkrahússins.
Bandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og
Kvenréttindafélag Íslands standa fyrir opnu húsi á Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, Reykjavík á konudaginn, sunnudaginn 24. febrúar kl. 15-17.
Fundurinn er öllum opinn og eru konur sérstaklega boðnar velkomnar.
Dagskrá:
1. Erindi: Kvennaheimilið Hallveigarstaðir og starfsemi félaganna þar.
Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands. 2. Erindi: Máttur
tengslanets kvenna. Sofía Johnson, framkvæmdastjóri Félags kvenna í
atvinnurekstri.
3. Erindi: BPW klúbburinn í Reykjavík (Business and Professsional
Women) Ingunn Sigurgeirsdóttir, gjaldkeri BPW klúbbsins.
4. Söngur: Félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur, undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur syngja nokkur lög.
Veitingar.
Evrópuþing ACWW – Women Winning for Planet Earth –
haldið í Southampton University í Hampshire, Englandi 1.-5. september 2008
Skráning og greiðsla ráðstefnugjalds fer fram hjá Kvenfélagasambandi Íslands sem einnig veitir allar frekari upplýsingar.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur sjái sjálfir um að panta flugfar til London
en sameiginleg ferð verur með lest frá London til Southampton eftir hádegi þann
1. september nk. Á skrifstofu KÍ er veitt aðstoð við að panta flugfar sé þess óskað.
Kvenfélagasamband Íslands minnir formenn héraðs og svæðasambanda KÍ á
að formannaráðsfundur verður haldinn 7.-8. mars nk. að Stöng í
Mývatnssveit. Fundarboð hefur verið sent til formanna héraðs og
svæðasambanda.
Þvímiður
féll niður hluti texta í útskýringu á ermum með gatamynstri, það sem á
vantar er hér: Bakstykki: Fitjið upp á lengri hringprjón nr. 3 ½, 126
L. Prj nú fram og aftur, uppskriftin er á bls. 37 í 4. tbl.
Húsfreyjunnar 2007